Ísland er yndislegt

Ég held að allt of margir gleymi því hversu mikil lífsgæði fylgja því að búa á þessu landi sem er svo ríkt af vatni og vatnsorku. Það að láta vatn renna er eitthvað sem ég hef löngu vanið mig af, og í dag fann ég svo innilega hvað það er mikill lúxus að hafa allt þetta vatn.

Ég fór í sund með krakkana, fyrst í heita pottinn, svo í barnalaugina þar sem við busluðum og lékum okkur. Síðan fórum við í djúpu laugina og hoppuðum og skvettum í allar áttir, svo fórum við aftur í barnalaugina og á meðan Eiríkur renndi sér í rennibrautinni, lékum við Erna og Egill okkur með bolta. Að lokum skelltum við okkur aftur í heita pottinn. Þetta var nú alveg frábært, en það var ekki fyrr en í sturtunni sem ég virkilega áttaði mig á því að það er sennilega engin önnur þjóð sem fer með vatnið eins og við Íslendingar. Í sturtunum var heita vatnið skrúfað í botn og svo smá köldu bætt við. Síðan var vatnið bara látið buna. Náði í bala fyrir Eirík, fyllti hann - nokkrum sinnum, því honum fannst svo gaman að sturta úr honum. Ekkert okkar var að flýta okkur, það bara rann og rann heitt vatn og það endalaust. Að mínu mati eru þetta ein mestu lífsgæði sem finnast í heiminum í dag. Eftir heita og langa sturtu stukku strákarnir að vatnsbrunninum og þömbuðu ískalt vatn - og herlegheitin kostuðu mig 300 ISK eða ca. 12 DKK. Til samanburðar kostar það 64 DKK fyrir einn fullorðinn og tvö börn að fara í sund í sundhöllinni okkar í Greve (með því að kaupa 10 miða kort, fullt verð er 80 DKK) eða 1536 ISK. Ég þarf ekki að taka það fram að upplifunin er önnur og kaldari.

Já það er ekki hægt að hrópa húrra yfir mörgu sem er að gerast á Íslandi í dag, en eitt er víst og það er að Íslendingar búa við ómetanleg lífsgæði, sem vega heilmikið upp á móti því ástandi sem er í þjóðfélaginu og ég á örugglega eftir að verða lengi að jafna mig af vatnsþránni þegar ég fer aftur út til Danmerkur.

Krílin eru alsæl með ferðina hingað til. Eiríkur hefur reyndar verið hálfutan við sig, allt eitthvað ómögulegt hjá honum, en það virðist vera þreyta, 2 klst tímamismunur sennilega ekki að fara vel í hann. Í dag sofnaði hann nánast ofan á kökudiskinn sinn hjá langafa og langömmu í Hamraborg, svo hann þarf sennilega að leggja sig aðeins á daginn til að jafna sig. Annars erum við búin að heimsækja alla afana og ömmurnar, fara í sund daglega að sjálfsögðu, horfa á Brúðubílinn og fara í gönguferð út í hraun. Svo keyptum við fullt af boltum og þau eru búin að vera mikið úti að leika og læra að verpa eggjum :) Framundan eru fleiri sundferðir, og svo margt annað skemmtilegt. Á mánudaginn byrja Erna og Egill á íþróttanámskeiði og þau hlakka að sjálfsögðu mikið til.

En bless í bili - ætla að fara að njóta þess að börnin eru sofnuð!


Örverpið stækkar hratt :)

Smá fréttir, ég ætla nú að reyna að vera stuttorð :) Eiríkur hætti á vöggustofunni á þriðjudaginn. Ég var alveg að verða geðbiluð á að finna einhverja kveðjugjöf handa fóstrunum. Þetta var orðið ansi stórt vandamál, á hann að gefa öllum eða einhverjum...

Skt. Hans

Loksins er komin alvöru sumarblíða, og það þarf ekki að taka það fram að lífið er bara yndislegt í svona veðri. Ég fór út að skokka áðan og fannst fullheitt, 25 gráður skuggamegin, og það er heiðskýrt. Já, það er bara ljúfa líf hér. Í gær (23.) var Skt....

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband